|
allskonar drasl ef manni leiðist!!!
Ni�?°urtalning
Fyrir 1571 dögum
|
08.05.2007 08:56:44 / guggsi
Komin með nýtt blogg, ætla
allavega að prófa það svona í pínustund!!
gudrunfanney.bloggar.is!!
»
07.05.2007 08:51:40 / guggsi
Nú er
illt í efni, ég á að vera í enskuprófi í ensku 403, en haldið
ekki að ég hafi (að sjálfsögðu) fengið helvítis ógleði og
uppköst!! orðin mjög mjög þreytt á þessu, þannig ég mátti gjöra
svo vel og hringja´upp í skóla (VMA) og segjast vera veik, og nú
er ég að bíða eftir sambandi við Pétur læknirinn minn, upp á
læknisvottorð!! fari það norður og niður segji ég nú
bara!!
En ég rakst
á helvíti sniðugt próf á http://b2.is/?sida=tengill&id=235346,
þetta er svona próf til þess að tékka á því hvaða flokk ég er mest
sammála, og eins og ég segi þá náttúrulega hafði ég svo sem enga
hugmynd hvernig prófið myndi enda ákvað bara að taka það, því eins
og þið vitið þá er ég Framsóknarkona. Og viti menn, niðurstaðan var
sú að ég væri mest sammála Framsóknarflokknum, eða um 70% sammála
honum haha....... vissi það það staðfesti grun minn hversu hörð
ég er næst kom samfylkingin með 50%, og Íslandshreyfingin einnig
50% (haha.....finnst það nú bara vera einhver djókur þessi
flokkur), Sjálfstæðisflokkurinn með 43% og Vinstri-grænir ráku
lestina með 17%, og varð ég ennþá sterkari í þeyrri trú að bola
verði burtu þessum flokki og hans hyski (Steingrím, Ögmund o.fl.)
haha...... voða leiðinleg en ég meina maður verður að styðja sinn
flokk, ekki eins og Steingrímur hafi verið að tala vel um náungann
gegnum árin!!
En allavega
um daginn eða 3.maí héldum ég og Hinrik upp á afmælin okkar og
buðum fjölskyldu og vinum, var ég nú að vonast eftir bara að fólk
myndi mæta og fá sér kaffi og með því hjá mér, þar sem ég og móðir
mín vorum búnar að vera sveittar við að baka og gera Um kvöldið
kom hópur fólks, fyrir utan tengdó en hún kom yfir daginn. Og viti
menn það streymdu yfir okkur pakkarnir eins og við værum að gifta
okkur!! fólk er alveg galið !! Við fengum t.d. steikarhnífapör,
grill, handþeytara, örbylgjuofn, pizzupönnu, sleifar, barnaföt,
kjól, nærbuxur, pening og miklu meira þvílíkt og annað eins og
vill ég bara enn og aftur þakka fyrir mig
Á
laugardaginn fórum við svo í afmæli hjá Kolfinnu, mágkonu Hinriks,
og var þar fullt af fólki, og þekkti eiginlega engan og ekki
kannski upp á mitt besta þar sem allir voru að drekka nema ég, og
mest að þessu voru Grenvíkingar sem eru lokaðasta fólk sem ég hef
hitt og er ég ekkert sérstaklega að reyna troða mér upp á fólk sem
ég þekki ekki, þannig ég skellti mér til Örnu í heimsókn, ,meðan
Hinrik drakk stíft í partyjinu og síðan keyrði ég hann niðrí bæ,
ákvað síðan að fara ekki með honum, en náði aftur í hann kl. 3 um
nóttina alveg blindfullur og ældi, VERY NICE!! Ætlaði að heyra í
Helgu Bergrúnu og fara með henni út, en hún var fjarri góðu ganni,
gleymdi símanum sínum heima og seinkaði eikkað með að fara út að
borða með vinnunni þannig endaði með því að hitta hana bara alls
ekki neitt en hún hringdi þessi elska í gær og sagði mér hvað á
hennar daga hefði drifið!!
En allavega
þangað til næst
bless
bless!!
»
03.05.2007 17:48:40 / guggsi
sælar elskurnar þá er ég 23 ára
í dag!!! og Hinrik minn heitelskaði er 19 ára í dag!! ég fór í
fyrstu mæðraskoðunina mína í dag! var mjög kröftugur
hjartsláttur hjá litla krílinu mínu, ljósmóðirinn mín var
heillengi að finna hjartsláttinn hjá barninu því það var á
fleygiferð inn í bumbuni!!, þannig hún sagði að fylgjan væri
framan á og Ýr mín elskulega vinkona sagði mér að
stelpurnar væru með kröftugasta hjartsláttinn þannig spurning
hvort ég sé með litla prinsessu inn í mér!! er svo spennt, en
ætla skrifa meira seinna á von á gestum í
kvöld.........chacha!!
»
28.04.2007 23:24:25 / guggsi
Fann þetta á netinu og finnst
þetta hrein SNILLD!!
EF KARLMENN GENGU MEÐ
BÖRNIN?
Væri barneignarfrí á fullum launum lágmark tvö ár...
Væri búið að finna lækningu við appelsínuhúð...
Væri "náttúruleg" fæðing úr sögunni...
Væri morgunógleði talið helsta heilsuvandamál þjóðarinnar...
Væri árangur getnaðarvarnapilla 100%...
Væru börn geymd á spítalanum þar til þau kynnu sjálf að fara á
kopp...
Væru menn æstir í að binda sig...
Væru tvíburar ekki svona rosalega krúttlegir í þeirra augum...
Yrðu synir að vera komnir heim af stefnumótinu klukkan tíu á
kvöldin...
Væru skjalatöskur notaðar sem bleyjugeymsla...
Væru óléttuföt helsta tískuframleiðsla heims...
Væru þeir rúmliggjandi alla níu mánuðina...
Myndu konur stjórna heiminum...
Haldiði ekki að þetta sé
satt??
»
27.04.2007 23:05:10 / guggsi
Ég ákveðið að hafa síðuna mína
græna í tilefni kosningann!!!! smá kosningaáróður!! Ekki láta
ykkur detta það í hug að ég kjósi vinstri-græna eins og einhver
lopapeysulýður ohhhh.......NEI
ÉG KÝS X-B
sem sagt
Framsóknarflokkinn
»
27.04.2007 18:56:56 / guggsi
Jæja snilldar dagur
í gær, fór með Örnu, Ýr og Hinrik og öll krílin þrjú
Kjarnaskóg sem var yndislegt!! Var ekkert smá gott veður og
ég gekk í barndóm þegar ég var að róla mér og fór í
rennibraut og síðan gebba gott grill á eftir
svínakótilettur og sonna En ætla nú ekkert að hafa nein
væmin orð um það
Í dag fór ég svo með Helgu
Bergrúnu á Kaffi Akureyri og vorum við þar örugglega í nálægt tvo
og hálfan tíma og töluðum og töluðum!!! það er svo langt síðan við
hittumst að við að við höfðum um svo margt að tala
Allavegahef ekkert meira að segja
í bili!!
»
22.04.2007 13:52:51 / guggsi
Jæja þá er ég loksins komin yfir fokking
ógleði!! orðin miklu hressari enda komin soltið yfir þrjá
mánuði, skal ég segja ykkur að það var tími til kominn!!
Maður er að leggja lokahönd á skólann núna og sonna, nóg af
prófum og ógeði framundan ..............
hlakka til aðfara í smá sumarfrí, en samt stefni ég helst á
sex einingar í sumarskóla, ég bara verð að gera það!! nenni
ekki að bíða með stúdent lengur!! Allaveganna, ætla aðfara
læra fyrir 40% próf úúúúúúú...........nenni því ekki!!
vildi að ég væri svona námshestur eins og sumir eru, þykja
gaman í skóla, ég er að þessu eingöngu til að klára
stúdent!!!! bæbæ
»
11.04.2007 15:19:36 / guggsi
jæja þá er að dratta sér til þess að blogga
loksins........ Þessir páskar byrjuðu ágætlega, ég og Hinrik
keyrðum til Ísafjarðar og allt í gúddí með það hittum Hjört
frænda, Óskar, Jón Þór, Kristínu og Birnu, allt gott og
blessað og allt virtist ætla að rætast, en daginn eftir var
party heima hjá Hirti og Hinrik í góðu fjöri, fór meira að
segja á Krúsina og allt, en ég var heima allt kvöldið og ældi
og ældi!!! Þessi litli ormur sem er í maganum mínum er að
gera mömmu sína vitlausa!! verður þá pottþétt fullkomin
krakki!! hehe...... segi svona , nei nei ég ætla að
greinilega fá þessa ekta einkenni óléttu sem lýsir sér með
mikilli ógleði og uppköstum allan daginn!!!!!! suma daga held
ég að ég sé hreinlega að lagast, en hina er ég bara ekki að
meika neitt!!! eins og í dag ég ældi tvisvar í skólanum og
einu sinni þegar ég kom heim, svaf til þrjú og fór aftur að
æla, veit ég er ekki dauðvona þannig hugsa bara stíft um að
þetta fer að enda, bara vika í það að ég sé gengin þrjá
mánuði og ég fer í fyrstu mæðraskoðunina mína á
afmælisdaginn minn og Hinriks, 3. maí Já allavega ætla nú
að klára söguna frá Ísafirði, þegar ég var búin að vera þar í
tvo daga, keyrðum við aftur heim, og ég var í bústaðnum hjá
mömmu og pabba allan tíman annaðhvort að liggja í leti eða
gera krossgátur!!..... þannig mjög viðburðarlitlir páskar, en
samt kósý bara hjá mömmu og pabba, þau eru náttúrulega alltaf
jafngóð þessar elskur
»
30.03.2007 18:30:52 / guggsi
jájá pæla í að blogga bara aðra
færslu
En seinustu tvo daga er ég búin að
vera með 40 stiga hita
ekki bætir það líðan mína ofan
í morgunógleði sem ég kýs að kalla meðgönguógleði því mér er óglatt
allan fokking daginn En vona að ég verði orðin hress á
þriðjudaginn svo ég komist vestur!! mamma og pabbi ætla að lána mér
bílinn sinn svo ég geti keyrt vestfirðina, ef ég myndi fara á
micrunni minni myndi nú fóstrið bara pompa úr
mér......hehe
Hinrik var að fara til Grenivíkur
áðan og verður örugglega í nótt finnst svo leiðinlegt að hafa
hann ekki hjá mér, sérstaklega þegar ég er veik, en hann er
örugglega komin með nóg af öllu þessu heilsuleysi á mér. Ég er ekki
alveg sama manneskjan og kann kynntist, en hann verður að þola
þetta þangað til í október
nenni ekki að skrifa meira í bili,
en endilega kommentið, finnst svo gaman að lesa það !!
»
26.03.2007 18:46:23 / guggsi
Jæja mikil ósköp mikil ósköp hérna hér að
ég er að pæla í að blogga hérna á síðunni
minni.................. loksins!!
Fyrst vil ég lýsa andúð minni á allri þessari
auglýsingu á Framtíðarlandinu, "ertu grá eða græn", svo þurfti
þessi auglysing að vera á heimsasíðunni minni beint fyrir ofan
textann"!!!!! kæri mig ekkert um það skal ég segja ykkur, og um
fokking leið og ég opna sjónvarpið þá er Steingrímur J Sigfússon
þar að bulla og þvaðra og þar fram eftir götum og lítið gert úr
öðrum, maður lifandi hlustar virkilega einhver á þetta anskotans
kjaftæði!!!!!!!!!!!! og vill VIRKILEGA einhver fá þennan
"lopapeysulýð" á þing ég bara spur sko........ er frekar æst yfir
þessu!!!
En allavega það sem er svona helst að frétta af
mér er það að inn í mér er lítill bumbubúi og segji ekki meira um
það í bili
Er á leiðinni til Ísafjarðar um páskana með
kæró hugsa sér...... maðurinn hefur aldrei komið þangað svo tími
til að kynna hann fyrir paradísinni
hef ekki meira að segja eins og er elska ykkur
öll.....
»
08.02.2007 11:59:15 / guggsi
jæja þá er ég að pæla í að fara blogga aftur, eftir heila tvo
mánuði!!!!!!!!!!!! er samt ekkert einhver snilli að blogga en ég
get svo sem sagt ykkur eikkað
Seinustu mánuði hefur svo sem mikið gerst t.d. er Hinrik fluttur
inn til mín, ég er á fullu í skólanum og stefni á útskrift næstu
jól
Fyrir tveim helgum fór ég á Þorrablót á Grenivík og var það bara
helv.... gaman aldrei farið á svona þorrablót áður, þannig já
ákveðin lífsreynsla. Arna Gerður vinkona mín og BJössi kærstinn
hennar og vinur minn eru að fara gifta sig í júlí og hef ég og
Vilmundur fengið það verkefni að vera skemmtanastjórar í
brúðkaupinu víííí......... svona embætti hef ég bara aldrei fengið
áður þannig vonum bara það allra besta Íbili man ég ekkert meira
að blogga.... ætla að drífa mig í skólann.......
bless í bili!!!
»
07.12.2006 23:35:43 / guggsi
hehe jæja þá er bara að skrifa um eikkað sem tengist ekki kæró 
þar sem Helgu minni elskulegu vinkonu finnst ég vera komin á svo
alvarlegar nótur og væmin að hún segist ekki þekkja mig lengur
híhí..... segi svona  En hef fjandann ekkert að segja .....
nema bara dönskupróf á morgun jibbí...... fallin pottþétt get
bara ekki náð þessu tungumáli!!!  svo er vinna bara um helgina og
síðan seinasta prófið mitt á þriðjudaginn næsta og þarf ekki að
vinna fyrr en á fimmtudaginn eftir það þannig ég ætla bara að
skella mér á Grenivík og hafa það bara gebba gott......  Þar sem
ég á ENGAN pening þessi jól þá get ég bara hangið heima og haft það
gott....  þangað til næst elskurnar.......kyss og knús
»
05.12.2006 11:24:24 / guggsi
jahá....... þá eru það bara prófin já blessuð prófin  ég hata þau
en þau eru óhjákvæmileg........ er einmitt að fara í þýsku lokapróf
eftir tvo og hálfan tíma jakk!!!!!!!! ég sökka í þýsku en verð að
ná henni svo ég geti útskrifast eftir ár............ svo er danska
á föstudaginn og stjórnmálafræði eftir viku svo er ég bara
hreinlega búin með þetta ógeð og þá tekur bara við vinna og vinna
og vinna!!!!  sem mér finnst nú bara gaman út af fyrir
sig.... og jóladjammið sem ég hreinlega vona að ég muni taka sem
mestan þátt í!!  En allavega hef ég komist að því að ég muni eyða
mínum áramótum á Grenivík!! Kaldhæðnislegt að ég kom fyrst til
Grenivíkur fyrir rúmlega þrem mánuðum og núna er þetta mitt annað
heimili  Ég hef alltaf eytt mínum áramótum á Akureyri en gaman
bara að breyta til, enda skiptir ekki máli hvar maður er langar
bara að eyða þeim með Hinrik  Síðan er hann að koma í skólann
eftir áramót sem þýðir aðeins eitt  hann er að flytja alveg til
mín híhí..... þannig það má segja að við séum að fara búa saman
vívívíííííííí!!!!!!!!!!!!!  Allavega blogga vonandi fljótt um
eikkað skemmtilegt elska ykkur dúllurnar 
»
27.11.2006 00:18:32 / guggsi
Jahérna hér er ekki að grínast, er að fatta það að ég hef ekkert
til að skrifa um yfirleitt og er enginn penni til að skrifa
einhverja fokking skemmtilega færslu, en ég læt nú samt vaða gott
fólk  Seinasta vika fór í það að vera heima hjá mér læra fyrir
próf og horfa á þrjár seríur af House shit hvað þetta er
skemmtilegir þættir  !!!!!!!!!! Hinrik nefnilega skildi eftir
flakkarann sinn heima hjá mér og gleymdu því að hann fái hann
aftur, ef við hættum einhverntímann saman verður forræðisdeila´um
flakkarann haha  En allavega um helgina var ég að vinna og fór að
sofa um ellefu á föstudagskvöldið en skellti mér á jólahlaðborð á
laugardagskvöldið með vinnunni og bauð að sjálfsögðu Hinriki með,
það var GEÐVEIKT gott, síðan kíkti ég í party heim til stebba á
eftir og síðan niðra á eikkað asnalegt splash party niðra á 1929,
tímaeyðsla, já tímaeyðsla sagði ég ........ömurlegasta djamm í
sögunni enda var ég orðin hálf edrú og sonna.... fannst ég ekki
þekkja neinn þannig við fórum snemma heim og og minn yndislegasti
kærasti sem er svo sætur langar að kreista hann híhí  nei
voða!!  allavega blogga seinna
»
14.11.2006 09:47:59 / guggsi
»
Síður: 1 2 3 ... 10
|
|